Hvað viltu láta gera? Byggja upp stutta brekku, nóg að hafa hana 35 til 50 metrar með 14% halla og mögulegum frystibúnaði til að halda snjónum lengur. Við bygginguna gæti verið möguleiki að gera "halfpipe" sem er skemmtileg viðbót við snjóbretta brekkuna. Frábær leið til að safna öllum snjónum af götum borgarinnar og nota í búnað við snjóbrettaiðkun. Auk þess er hægt að virkja þá sem eru á brettum til að moka og fínstilla brekkuna, eins og iðkendur gera oft sjálf í fjöllunum. Hvers vegna viltu láta gera það? Mjög praktískt og skemmtilegt að fá unglingana til að vera i miðri borg, frekar en í Bláfjöllum á virkum dögum. Ódýrara að ferðast til og frá Klambratúni miðað við Bláfjöllin. Það er mikill áhuga á snjóbrettaiðkun í Reykjavíkurborg.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation