Það væri gaman að fá útieldunarstæði í nágrenni við tjörnina í Seljahverfi. Aðstöðuna geta leik- og grunnskólar nýtt sér við útikennslu og einnig æskulýðs hreifingar eins og t.d. skátarnir. Þá væri líka gott að fjölga borðum með bekkjum á svæðinu til þess að snæða við. Góð fyrirmynd að flottu útieldunarstæði má finna á útivistarsvæðinu í Gufunesbæ: http://www.gufunes.is/desktopdefault.aspx/tabid-272/307_view-1678/
Frábær hugmynd og myndi efla góða skátastarfið sem er í boð hjá Seglum
Skólar og bekkir myndu nýta sér þetta auk auðvitað skátakrakak
Þetta gæti nýst mörgum! Frábært hugmynd :)
Margir geta haft gagn og gaman af flottu útieldunarsvæði. Hvaða hópur sem er getur komið saman við tjörnina og grillað hvað sem það er sem þeim langar að grilla; pulsur, sykurpúða, hæk-brauð, popp o.s.fv. Skólarnir í hverfinu geta nýtt sér aðstöðuna enda er aukin áhersla á útikennslu að riðja sér rúms í skólum landsins. Skátarnir eru æskulýðshreifing sem myndi njóta mjög góðs af þessu svæði en aðstaðan sem þeir hafa í Tindaseli er ekki frábær til útivistar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation